 |
Skelltu þér í skemmtilega 4 klst. veiðiferð! |
Eftirminnilegar sjóstangaveiðiferðir frá
smábátahöfninni í Keflavík með Hvalbaki
Róið er frá Keflavík þar sem það tekur aðeins 15 mínútur að sigla á miðin í Faxaflóa. Algengt er að veiðiferðirnar standi í um fjóra tíma, og er möguleiki á að lengja það ef áhugi er fyrir hendi. Hámarksfjöldi 10 farþegar og lágmarksfjöldi 4 farþegar. Við útvegum allan veiðibúnað og beitu.
Mest veiðist af þorski og ýsu en einnig er hægt að búast við að fá steinbít, löngu, keilu, ufsa eða lúðu. Í 90% tilvika sjást hvalir, háhyrningar, hnísur, höfrungar eða hákarlar og margar tegundir sjófugla.
Hlýr og góður fatnaður er nauðsynlegur í allar ferðir. En ekki koma í of fínum fötum því þau geta óhreinkast þegar mikið veiðist. Við flökum síðan aflann fyrir þig um borð án aukagjalds. Ekki er boðið upp á veitingar um borð og er því rétt að taka eitthvað nesti með.
Brottför er kl. 7:30, 11:30 og 16:00. Aðrir brottfarartímar eftir samkomulagi í samráði við farþega.
Verð aðeins €60 EUR fyrir hvern farþega.
Hringdu núna og bókaðu ógleymanlega veiðiferð!
Með kveðju,
Garðar Magnússon skipstjóri
Netfang: gardar@sjostangaveidi.net
Sími: 897 3332
|